9.12.2007 | 01:05
Diskurinn komin í hús!
Er búin að setja inn tónlistaspilara og þar má finna smá sýnishorn af disknum sem er kominn út! Diskurinn heitir Jól með Óskari og Laugu og kemur kórinn "minn" þar mikið við sögu. Fyrra lagið er afrískt stuðlag...mjög svo skemmtilegt Seinna lagið er Eyjajól og var það fyrst flutt á jólatónleikunum í fyrra við mikla hrifningu áhorfenda. Njótið vel og endilega skrifið hvað ykkur finnst! Leyfi textanum af Eyjajólum að fljóta með, mér finnst hann svo flottur!
Eyjajól
Það er eins og allt hér breytist ef stutt í jólin er
Líkt og ekki nokkur þreytist, þetta finnst oft mér
Allt þarf að gera, ekkert má vera
Þrífa skál húsið og allt um kring
Húsin að skreyta öllu að breyta
Allt þarf að gera fínt
Þegar nær er komið jólum
Og næturheimininn skín
Bjart er yfir flestum bólum
Oft það okkur villir sýn
Því það hafa ekki allir sömu gæði
eins og flest við höfum hin
Já gefðu öllum jólin
Ljúfu Eyja jólin mín
Þegar allt er orðið til, svo haldið getum jól
Engin fær þá kerti og spil, það þykir ekki nóg
Oft þá við leymum í hjarta ei geymum
Hvers vegna höldum við heilög jól
Við jólabarn eigum, því gleyma ei megum
Það hljómi um heimsins ból
Lag: Amy Grant/Bary Chapman
Texti: Sigurður Óskarsson
Færsluflokkar
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sæl systir.
Sá sms sem tu sendir mømmu og fór inn ad hlusta. Mjøg flott
Annars er flott ad frétta af okkur vid tølum saman betur sídar
Hilser Hannes
Hannes litli bró (IP-tala skráð) 9.12.2007 kl. 15:05
Hæ darling
Hlustaði á lögin tvö og má til með að láta í ljós ánægju mína með þessi sýnishorn sem þú bauðst upp á. Ef hin lögin eru jafn góð og þessi tvö ...ja ....þá er sko vel þessi virði að festa kaup á þessum disk.
Kolféll fyrir afríska laginu þegar ég heyrði það fyrst á aðventunni í fyrra og útsetningin á disknum er alveg hreint frábær.
Textinn hans Sigga kafara smellpassar við lag Amy Grant. Rosalega fallegur texti við þetta fallega lag og virkilega vel sungið.
Jólakveðja
Helena
Helena, 14.12.2007 kl. 20:35
Þetta er ljúft
Til hamingju með diskinn
Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 15.12.2007 kl. 08:25
hæhæ hverjir syngja einsöng í seinna laginu?
kv,Örn/Solla
Örn (IP-tala skráð) 15.12.2007 kl. 22:49
Hæhæ Örn og Solla....gaman að sjá ykkur hér
Óskar og Lauga syngja einsöng....finnst ykkur þetta ekki flott lag?
Vilborg, 16.12.2007 kl. 02:01
jú þetta er mjög gott lag.
Örn/Solla
Örn (IP-tala skráð) 17.12.2007 kl. 18:45
Jeminn, hvar er þessi síða búin að vera Vilborg ??? Ég hafði ekki hugmynd um að þú værir að blogga :)
Æðislegt að heyra í ykkur syngja, þetta er rosalega flott hjá ykkur þú mátt skila því til gömlu kórsystkinanna minna :)
Gleðileg jól snúllan mín og vonandi sé ég þig einhvað áður en ég á að eiga litla krílið :) KNÚS :*:*:*
Helga Björk (IP-tala skráð) 20.12.2007 kl. 21:31
Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 23.12.2007 kl. 10:31
Gleðileg jól elskan mín og hafðu það gott yfir hátíðarnar :*:*:*
Helga Björk (IP-tala skráð) 24.12.2007 kl. 12:16
Þökkum fallega jólakveðju
Gleðilegt ár og þökkum liðið
Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 31.12.2007 kl. 14:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.