Kominn tími á fréttir?

Vor í lofti....elska þennan tíma.  Vorboðarnir láta sjá sig einn af öðrum og nú er ég búin að sjá 3 af uppáhalds vorboðunum mínum....Tjald, Lóu og Lunda....me like!   Nú er orðið erfitt að fá peyjana til þess að koma inn, hvort sem það er til að læra, borða eða sofa, þeir vilja bara vera úti að leika sér.  Stóri peyjinn ver öllum sínum frítíma í nýjasta æðið hér í bæ og það er Rugby....hef aldrei skilið þá "íþrótt" almennilega, en litli stubburinn er með hjólamaníu á háu stigi. 

Annars tók sá yngri upp á því að fá flensu og er búinn að vera veikur í viku núna (ekki fyrsti afmælisdagurinn sem fer í flensu) en fékk að fara út að leika fyrst í dag og þvílík gleði.  Lentum í tómu tjóni að reyna að fá hann inn til þess að borða og fara að sofa....hehehe.  Hann var svona eins og beljurnar á vorin....nema kannski pínu óþekkariTounge

Ég er á milljón á æfingum fyrir tónleika sem verða 26.apríl í Höllinni hér í Eyjum.  Þar leiða saman hesta sína Tríkot og Lúðró og er alveg hægt að garantera frábæra skemmtun!  Prufukeyrðum "konseptið" á sjómannadaginn í fyrra og eru það ekki ýkjur að fólk var komið upp á borð, svo mikið var stuðið!   Ég veit ekki til þess að Lúðrasveit og rokkhljómsveit hafi leitt saman hesta sína áður en það er sko virkilega kominn tími til....þetta er ótrúlega flott og virkar bara alveg jafn vel og "Eitthvað og Sinfó" Whistling 

Verð svo aðeins að minnast á það að lokum að hér er búið að vera nóg að gera í afmælumWizard

Bergur Óli litli frændi varð 2 ára mánudaginn 24.mars

Stóri strákurinn minn varð 13 ára viku seinna (31.mars),

Við fengum svo lítinn frænda í heiminn viku seinna (7.apríl),

Litla barnið mitt varð 7 ára viku seinna (14.apríl),

og lokahnykkurinn er svo flottu frændurnir okkar Alexander og Patrekur sem verða 6 ára mánudaginn 21. apríl!!!

Mikið er maður nú ríkur!!!

 

30.mars '08 174
HeartFlottustu afmælispeyjar í heimiHeart
Bless á meðan,
Vilborg

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

Til hamingju með ALLA strákana  

og vorið það er sko örugglega komið

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 20.4.2008 kl. 10:39

2 Smámynd: Kolbrún Jónsdóttir

hæhæ

hvað er að frétta af ferð til dk??? 

Kolbrún Jónsdóttir, 20.4.2008 kl. 15:23

3 identicon

Hæhæ

Til hamingju med peyjana tina, eg er sammála rædumanni á undan hvenær er tad ferd til DK?

 Kvedja úr sumrinu í DK

Ólöf og Hannes (IP-tala skráð) 21.4.2008 kl. 11:51

4 identicon

Sæl frænka og gleðilegt sumar.

Hjá okkur er búið að vera mikið stuð í dag þar sem við höldum sérstaklega uppá  fyrsta sumardag. 

Innilega til hamingju með nýja og eldri drengi í fjölskyldunni.

Knús til ykkar allra

Eygló Kr (IP-tala skráð) 24.4.2008 kl. 23:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Vilborg
Vilborg
Landsbyggðartútta, eiginkona og stolt móðir :o)

Færsluflokkar

Nýjustu myndir

  • 24.des '08 053
  • vilborg
  • vilborg

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband